Vefsetrið þjónaði framboði mínu til forseta í júní 2004. Ég vona að þú hafir á þeim tíma fundið þar upplýsingar sem hjálpuðu þér að gera upp hug þinn í kosningunum.
Eins og ljóst var af málflutningi mínum þá og þeim markmiðum sem ég hafði með framboði mínu, þá tel ég að margt megi og þurfi að gera til að bæta þjóðfélagið okkar. Í vaxandi mæli sígur á ógæfuhlið. Margt af því sem við höfum aðeins séð hjá öðrum þjóðum er því miður að gerast á Íslandi. Heilbrigðiskerfið býr við vanda og umönnun aldraðra er ábótavant. Fíkniefnavandinn stækkar. Skuldasöfnun heimila og ungs fólks sérstaklega, er áhyggjuefni. Fátækt er að læða sér inn í þjóðfélagið og í vaxandi mæli má segja að í landinu búi tvær þjóðir: Þeir sem eiga og þeir sem skulda.
Hér á vefsetrinu mun ég halda saman greinum sem ég hef skrifað um þjóðfélagsmál undanfarin ár og flestar hafa birst í Morgunblaðinu. Einnig greinum eftir aðra eftir því sem tilefni er til.
Valröndin hér að ofan gefur þér auk "Greinasafns" möguleika á að skoða “Forsetakosningar 2004”: markmið mín, ljósmyndir og annað efni frá þeim tíma, svo og "Æviágrip" mitt.
“Velkomin/n í hópinn” gefur þér kost á að skrá þig í stækkandi hóp þeirra sem vilja eiga mannvænt, öruggt og réttlátt þjóðfélag í landinu okkar. “Tenglar” - sem er í smíðum - bjóða upp á skyld efni frá öðrum aðilum ss. lög, reglugerðir og annað sem varðar okkur öll.
“Fagra Ísland” hefur að geyma tónlist og fallegar svipmyndir af landi og þjóð. Þá verða kannanir fastur liður. Þar verður kannað viðhorf þjóðarinnar til mikilvægra mála sem snerta okkur öll.
Það er von mín að vefsetrið verði vettvangur skoðanaskipta og samastaður þeirra er láta sig þjóðfélagsmál varða. Ég hlakka til að heyra frá þér - þín skoðun skiptir máli. Sendu mér línu á
baldur@landsmenn.is ef það er eitthvað sem þú vilt koma á framfæri við mig.
"Orð eru til alls fyrst"
Kær kveðja,
Baldur Ágústsson