Hermann Þórðarson: Ástþór Magnússon telur að þriðja heimsstyrjöldin (Armageddon?) muni hefjast í Palestínu og biðlar til Dorritar Moussaiev forsetafrúar um að koma í veg fyrir það. Þótt Dorrit sé frábær kona þá efast ég um að hún sé fær um að miðla málum í Palestínu, hvað þá að fyrirbyggja heimsstyrjöld. En er hún ef til vill þegar hafin?

 

Að mínu mati ert þriðja heimsstyrjöldin þegar hafin. Þetta er ekki styrjöld milli þjóða heldur styrjöld milli ósættanlegra menningarheima. Hún hófst með árásum islamskra öfgamanna á New York og Washington árið 2001. Þetta er ekki venjulegt stríð, ekki frekar en stríðin í Írak og Afganistan. Þarna takast ekki á hefðbundnir herir á vígvöllum eins og í fyrri styrjöldum. Hermenn andstæðinga okkar (vesturlandabúa og annarra andstæðinga islamista) klæðast ekki herklæðum og eru í fæstum tilfellum sýnilegir. Þau öfl sem standa að baki þessum nýju stríðsherrum eru öfgafullir trúarleiðtogar sem lúta stjórn ofstækisfullra manna eins og Bin Ladens og eru studdir fjárhagslega með hluta af olíupeningum miðausturlanda og ræktun og og sölu á eyturlyfjum. Takmark þessara afla er að ná yfirráðum í hinum vestræna heimi og þeim hlutum Asíu og Afríku sem ekki nú þegar lúta islam, útrýma kristni og eyða vestrænum gildum og öðrum gildum sem ekki eru höll undir öfgafulla islamista. En hvernig ætla þessi öfl að ná markmiðum sínum? Ekki með hernaði á venjulegum vígvöllum, það hefur áður verið reynt en sem betur fer ekki tekist. En hvernig þá? Það er ætlun þessara afla að með vaxandi innflutningi á trúbræðrum sínum til vesturlanda, aðallega til Evrópu, geti þeir leynt stríðsmönnum sínum í hópi venjulegra innflytjenda. Ætlunin er síðan að vinna bug á okkur innanfrá. Það verður gert með hryðjuverkum og áróðri. Með ofbeldi og ofsóknum gegn hófsömum trúbræðrum sínum ætla þeir að koma áætlunum sínum í framkvæmd. Við höfum fengið að sjá þessi öfl að verki með hryðjuverkunum í Bretlandi og á Spáni og komist hefur upp um áætlanir um samskonar hryðjuverk í Þýskalandi og á Norðurlöndum. Tilgangurinn er að vekja ótta og uppgjöf á meðal okkar. Það er heldur ekki hægt að útiloka að gjöreyðingarvopnum verði beytt takist þeim að komast yfir þau. Þessir menn svífast einskis því þeir trúa því að allt sem þeir gera sé gert að boði guðs. Hófsamir kristnir menn og naívistar vilja að við sýnum þessu fólki umburðarlyndi. Hversvegna að sýna þeim sem ekkert umburðarlyndi hafa, umburðarlyndi? Þess má sjá merki í yfirlýsingu æðsta klerks Biskupakirkjunnar í Bretlandi um að við eigum að samþykkja vissa hluta Sharialaga islamista að áróðurinn er farinn að virka. Hvað á maðurinn við? Vill hann taka upp þann sið að grýta “syndugar konur” til bana í opinberum aftökum? Vill hann samþykkja heiðursmorð? Svíar hafa nýlega samþykkt að múslimakonur á þingi þar í landi meigi bera slæður. Allt í lagi með það. En haldið þið að kristnar þingkonur í Íran eða Sádi-Arabíu, ef þær væru til, fengju að vera slæðulausar? Látið ykkur ekki detta það í hug.

 

Í Sádi-Arabíu er iðkun kristinnar trúar bönnuð og í sumum löndum múslima er það dauðasök að skipta um trú. Fyrir nokkrum árum síðan þegar íslenskt flugfélag fékk samning um að flytja pílagríma til Mekka urðu þeir að mála yfir íslenska fánann á vélunum af því að krossinn mátti ekki sjást í landi spámannsins! Í Noregi hefur komið í ljós að börn bókstafstrúarmúslima dragast aftur úr í skólum þar í landi vegna þess að þeim er gert að iðka bænalestur fimm sinnum á dag og missa þar af leiðandi af fræðslu. Þetta veldur því að síðar á ævinni dragast þessi börn aftur úr og verða ekki samkeppnisfær í lífsbaráttunni og það ýtir undir neikvæða afstöðu þeirra til þess samfélags sem þau búa í og verða þar af leiðandi auðveldari fórnarlömb bókstafstrúarmanna. Mér sýnist að yfirvöld í Evrópu séu ekki nægilega vakandi yfir þessari vá. Múslimar á Íslandi eru ekki margir og vafalaust allt hið besta fólk en nú þegar þeir leita eftir leyfi til þess að byggja sitt fyrsta guðshús, mosku, hvernig ætla þeir að tryggja að hún verði ekki uppspretta öfgasinna þar sem börnum er innrætt að hata og fyrirlíta landa sína sem ekki eru sömu trúar og telja það skyldu sína að boði guðs (Allah) að drepa þá sem ekki aðhyllast algjör yfirráð islams? En um leið og við komum okkur upp vörnum gegn þessum ofstopamönnum verðum við að tryggja að venjulegt fólk úr hópi trúbræðra þeirra verði ekki fyrir ofsóknum og mismunun vegna trúar sinnar. Ég er ekki rasisti og hef ekkert á móti öðrum trúarbrögðum. En ég vara við ofstækismönnum sem leynast innan um venjulegt fólk og ala á hatri og fyrilitningu á kristni og öðrum trúarbrögðum en islam og heilaþvo unglinga í trúarbragðaskólum þar sem tilgangurinn er að framleiða hryðjuverkamenn til þess að fórna sér í sjálfsmorðárásum.

 

Hættum að láta undan ofbeldisöflum hvaðan sem þau koma. Tökum hart á þeim og gjöldum líku líkt. Með illu skal illt út reka.