Eignarrétturinn er mikilvægur. Undir þessari yfirskrift er leiðari Fréttablaðsins 2. sept. sl. sem skrifaður er til stuðnings tryggari eignarrétti útgerðarinnar á aflaheimildum. Vísað er til þess að Ragnar Árnason, prófessor áætli að ríkið sparaði sér um þrjá milljarða fái sjávarútvegurinn að ráða sér sjálfur án afskipta hins opinbera. Mikil umræðuherferð er nú í gangi, sem ætlað er að sýna fram á að veiðiheimildir útgerðarinnar séu betur komnar sem formleg eign hennar en ekki sameign þjóðarinnar eins og lög mæla fyrir um. Svokölluðum frjálshyggjumönnum, þ.e. andfélagslega sinnuðum mönnum, hefur löngum sviðið í augum að ríkið – þjóðfélagið - eigi einhver verðmæti sem samfélagið getur haft tekjur af. Þannig er með nytjastofnana á Íslandsmiðum. Þeirra skoðun er að aflaheimildir eigi að færast útgerðinni til fullrar eignar og umráða, sjálfsagt ókeypis, og allt eftirlit með stofnunum og nytjar verði í höndum eigendanna. Ekki ríkisins.

 

Og að sjálfsögðu vilja útgerðarmenn þiggja þjóðarauðinn til fullrar eignar enda hafa samtök þeirra látið vinna lögfræðiálit um að útgerðin eigi nú þegar veiðiheimildirnar.

Nýlega var haldin ráðstefna á vegum Rannsóknarmiðstöðvar um samfélags- og efnahagsmál (RSE), sem er stofnun sem virðist vera stýrt af forstjórum stórfyrirtækja, fjármálafyrirtækja og þekktum frjálshyggjumönnum, miðað við skipan fulltrúaráðs samtakanna. Þá voru á ráðstefnunni margir útlendingar, sem ætla má að hafi annan skilning en íslendingar á mikilvægi þjóðarauðlindana fyrir þjóðina. Þeir hafa líklegast túlkað sjónarmið hins alþjóðlega fjármagns, enda þátttaka þeirra í ráðstefnunni sjálfsagt kostuð af fyrirtækjum sem fulltrúaráðsmennirnir í RSE koma frá. Ekki virðast gagnstæð sjónarmið hafa komið fram á ráðstefnunni enda ólíklegt að forgöngumenn félagsskaparins hafi áhuga á þeim. Niðurstaðan er fyrirfram gefin. Sýnilega á þessi stofnun að setja fræðilegan stimpil á sókn einkafjármagnsins í auðlindir þjóðarinnar og arðsöm fyrirtæki. Að þessu sinni fiskimiðin.

 

Verkefni umræddrar ráðstefnu virðist hafa verið að sýna fram á, með fræðilegri umræðu, þjóðfélagslega hagkvæmni þess að útgerðin ætti fiskimiðin eins og hverja aðra fasteign og stjórnaði sjálf allri nýtingu þeirra og eftirliti. Eignarrétturinn er mikilvægur. Eignarrétturinn er ekki bara mikilvægur einstökum útgerðarfyrirtækjum sem eiga búnað til fiskveiða eða þeim sem nýta með einhverjum hætti náttúruauðlindir Íslands. Þannig er eignarréttur þjóðarinnar á öllum auðlindum landsins mjög mikilvægur. Sérstaklega eignarrétturinn á öllum nytjastofnum á Íslandsmiðum. Nytjastofnum sem íslendingar börðust um aldir við útlendinga um yfirráð yfir og háðu 10 “þorskastríð” til að halda lífsbjörginni í eigu landsins. Að afsala þjóðinni eignarréttinum á fiskimiðunum til einkaaðila, þótt íslenskir væru, er í raun fjarstæða, sem varla ætti að koma til alvarlegrar umræðu. Slíkur gerningur skaðaði sjálfstæði þjóðarinnar verulega og mætti líkja við landráð. Þjóðin þarf því að vera vel á verði gagnvart öllum hugmyndum og falsfræðum um að afsala frá henni þeim auðlindum sem eru grunnurinn undir þeim lífsgæðum sem hún býr í dag við, hvort sem þær auðlindir eru til sjós eða lands.

 

Árni Þormóðsson

Höfundur er öryggis-og næturvörður